föstudagur, janúar 07, 2005

Kiefer Sutherland forviða yfir skotgleði Íslendinga á gamlárskvöld ( Sjá frétt)

Leikarinn Kiefer Sutherland, sem dvaldist hér á landi um áramótin, segist hafa orðið forviða yfir skotgleði Íslendinga. „Ég sá örugglega rosalegustu flugeldasýningu á ævi minni,“ er haft eftir honum á vefritinu Contactmusic. „Það eru engin lög um flugelda á Íslandi, sem gerir gamlárskvöld mjög áhugavert. Þetta er lítil þjóð en þeir eyða meira en 15 milljónum dollara í flugelda fyrir þetta kvöld.

„Þetta er eins og stríðssvæði. Það er ekkert skipulag ... ég sá sex ára krakka halda á 15 kílóa sprengjuvörpu og annar sex ára krakki elti hann með eldspýtur.

Ég tók myndband af þessu því ég hélt ekki að neinn myndi trúa mér heima,“ sagði Sutherland.


Hahahahahahahahaha.
Djöfull hefur kallinn verið fullur. Farinn að sjá ofsjónir.

Kv,
Ted Cofell